Námsefnisgerð í HTML | Um | SOS | Nemendur | Hól | Tilvísanir | Skipanir | Lexíur | fyrri | næsta |

9. Forsniðinn texti

Hvernig getur maður

      sýnt
          texta
       þar sem       bil, 		dálkmerki   og   línu-
                  skifti   virka?

Markmið

Eftir þessa lexíu átt þú að kunna að:

Lexía

Athugaðu: Ef þú átt ekki vinnuskjalið úr síðusti lexíu, þá getur þú sótt eintak núna.

Í fyrri lexíum sáum við að vefskoðarar hunsa auka bil, dálkskipanir (e. tabs), og línuskifti (e. carriage returns) sem hugsanlega finnast í HTML skjölum. En stundum er mikilvægt að geta haldið þessum hlutum í uppsetningu skjals. Í þessari lexíu verður það þar sem við viljum setja inn töflu með jöfnuðum textadálkum.

Forsniðsskipunin segir vefskoðaranum að sýna texta nákvæmlega eins og hann er ritaður í HTML skjalið, þar með talin bil, dálkskipanir og línuskipti. Venjulega setur vefskoðarinn slíkan texta upp með

j a f n l e t r i

sem þýðir að allir stafir stafrófsins eru jafn breiðir. Hér er dæmi um forsniðsskipunina:

dæmi um vefsíðu

    <pre>
    Þetta er inndregið um 5 stafabil.
    Og línuskipti eru notuð til að hoppa
    í
    nýja
    línu.

          Hér       eru
          bil       notuð
          til       að
          búa       til
          texta-    töflu.
   </pre>

Ef <pre> og </pre> skipanirnar eru ekki notaðar þá kemur þessi texti svona út:

dæmi um vefsíðu
Þetta er inndregið um 5 stafabil. Og línuskipti eru notuð til að hoppa í nýja línu. Hér eru bil notuð til að búa til texta- töflu.

Þegar forsniðsskipun er notuð, þá hjálpar það mikið ef vefskoðarinn getur sýnt janfletur (eins og „Courier“ eða „Monaco“); Ef hann getur það ekki þá verður þú að telja bil þegar þú setur texta upp í dálka (og tuldrar ljót orð í hljóði).

Við ætlum að bæta töflu í Innganginn í Eldfjallavefnum og setja í hana nokkur vel þekkt eldfjöll, hvenær þau gusu og rúmmál gosefna sem komu úr þeim. Til að gera það:

  1. Opnaðu HTML skjalið index.html í textaritlinum.
  2. Á eftir síðustu orðunum í Innganginum skaltu setja fyrirsögn af stærð 4 (<h4>) með textanum Rúmmál gosefna úr nokkrum þekktum eldgosum (Ef þú manst ekki hvernig á að gera fyrirsögn, þá skaltu skoða lexíu 3).
  3. Fyrir neðan þessa fyrirsögn skaltu setja eftirfarandi texta nákvæmlega eins og hann er sýndur hér (nú væri gott tækifæri til að afrita og líma úr þessari síðu!):
    
    <pre>
      Eldgos                        Dags            Rúmmál í km^3
      --------                      ----            -------------
      Parikútin, Mexíkó             1943                 1,3
      Vesúvíus, Ítalíu             79 F.K.                3
      Mount St. Helen, Washington   1980                  4
      Krakatá, Indónesíu            1883                 18
      Long Valley, Kaliforníu    forsögulegt          500 - 600
      Yellowstone, Wyoming       forsögulegt             2400
    </pre>
    
    Í þessu dæmi setjum við inn stafabil þannig að fyrsti dálkurinn er jafnaður vinstra megin, en hinir tveir eru miðjaðir. Bandstrikin eru notuð til að aðgreina dálkafyrirsagnir.
  4. Vistaðu skjalið og kallaðu síðuna inn í vefskoðarann.

Gættu að hvað þú gerir

Berðu þína síðu saman við dæmi um hvernig þessi síða ætti að líta út. Ef þín síða er ekki eins, þá skaltu endurskoða þann texta sem þú ritaðir í textaritlinum. Ef dálkarnir eru ekki jafnir, þá er líklegt að annað hvort vanti bil eða bilum er ofaukið.

Upprifjun

Upprifjunarefni í þessari lexíu:
  1. Hvernig breytir forsniðsskipunin aðferð vefskoðara við að túlka HTML texta?
  2. Við hvaða aðrar aðstæður er hugsanlegt að nota þessa skipun?

Frekari upplýsingar

Það er hægt að setja HTML skipanir í texta þó hann sé merktur með forsniðs skipunum. Til dæmis er hægt að setja stikluleggi og stílskipanir á milli <pre>...</pre> skipananna:
HTML Niðurstaða
<pre>
Þetta námsefni er með höfundarrétti
1995, 1996

    <B>Segðu öllum vinum þínum
    frá því samt!</B>
             <i>Við
                  viljum
                    fá
                      viðbrögð</i>
endilega,
<A HREF=
"http://www.vma.is/">
FVÍ</A>
</pre>
dæmi um vefsíðu
Þetta námsefni er með höfundarrétti
1995, 1996

    Segðu öllum vinum þínum
    frá því samt!
                Við
                  viljum
                    fá
                      viðbrögð
endilega,
FVÍ
	
Athugaðu að HTML skipanirnar teljast ekki til bila; forsniðið hunsar þær.
Sumir vefhönnuðir nota <pre>...</pre> skipanir með línuskiptum á milli til að setja auð bil á milli lína -- sérstaklega ef þeir vilja stærri bil en <p> skipunin gefur. Til dæmis:
HTML Niðurstaða
Ostur var lengi bannaður
í Austurlöndum fjær.
<pre>



</pre>
...þar til Lénharður mætti á staðinn
í Ostaferðinni miklu árið 1167.
dæmi um vefsíðu
Ostur var lengi bannaður í Austurlöndum fjær.



...þar til Lénharður mætti á staðinn í Ostaferðinni miklu árið 1167.

Æfing

Bættu töflu eða lista við HTML skjalið þitt og notaðu til þess forsniðsskipunina.

Næst á dagskrá....

Nú er komið að því að setja inn ýmis sértákn sêm ërû ñøtÜð í Evópu (svo ekki sé talað um íslensku).
FARA Á.... | Efnisyfirlit | síðasta: „Tengimyndir“ | næsta: „Sértákn“ |

Námsefnisgerð í HTML: Lexía 9: Forsniðinn texti
©1994 - 2000 Maricopa Center for Learning and Instruction (MCLI)
Maricopa Community Colleges

Tengiliður MCLI er Alan Levine
Sendu athugasemdir til alan.levine@domail.maricopa.edu
eða gaui@mmedia.is

URL: http://www.vma.is/tut/tut9.html

Þýtt með leyfi höfundar