Námsefnisgerð í HTML | Um | SOS | Nemendur | Hól | Tilvísanir | Skipanir | Lexíur | fyrri | næsta |

8. Stiklað á akkerum

Slappaðu nú af... þessi lexía er fljót og auðveld! Þetta eru bara smá upplýsingar sem þú átt að lesa...

Hvað er URL?

Afl vefsins felst einna helst í því að hægt er að setja upp svokallaða stikluleggi (e. hypertext link) í skyldar upplýsingar. Þessar upplýsingar geta verið aðrar vefsíður, myndir, hljóð, stafrænar kvikmyndir, hreyfimyndir, hugbúnaður, innihaldið í Gopher þjóni, tenging við fjarlæga tölvu eða hugbúnaðarsafn, eða „ftp“ þjón.

Veraldarvefurinn (e. World Wide Web) notar tilvísanakerfi sem kallast URL, eða Uniform Resource Locator (stundum líka kallað „Universal Resource Locators“), til að sýna hvar upplýsingarnar er að finna. Þessir stikluleggir, sem venjulega eru bláir og undirstrikaðir, kallast akkeri (þetta ætti ekki að koma þér á óvart, þar sem þú ert búinn að nota nokkur til að komast alla þessa leið).

Í næstu lexíum ætlum við að:

Vá! Þetta virðist vera heill hellingur! En hafðu ekki áhyggjur -- þetta er alls ekki flóknara en það sem þú hefur gert hingað til.

Og án þessara stikluleggja (e. hyperlink) héti þetta námskeið „Námsefnisgerð í TML“ en ekki Námsefnisgerð í HTML


Næst á dagskrá....

URL notuð til að tengja skjöl saman með stikluleggjum.

FARA Á.... | Efnisyfirlit | síðasta: „Vefmyndir“ | næsta: „Stiklað í nálæg skjöl“ |

Námsefnisgerð í HTML: Lexía 8: Tenging með akkerum
©1994 - 2000 Maricopa Center for Learning and Instruction (MCLI)
Maricopa Community Colleges

Tengiliður MCLI er Alan Levine
Sendu athugasemdir til alan.levine@domail.maricopa.edu
eða gaui@mmedia.is

URL: http://www.vma.is/tut/tut8.html

Þýtt með leyfi höfundar