![]() |
J A V A Bara smá bolli, ég þarf að passa mig að drekka ekki of mikið koffín. Ó já, það örvar mig, en ég fæ líka óstöðvandi skjálfta ... á vefsíðuna mína? Auðvitað, af hverju ekki? Það eru allir að nota það..." |
Eftir þessa lexíu átt þú að kunna að:
Þegar Sun Microsystems kynntu Java snemma á tíunda áratugnum, þá var mikið sagt um möguleika þess, of mikið eftir því sem sumir sögðu. Eins stuttlega og hægt er að orða það, þá er Java nýtt forritunarmál sem gerir manni kleyft að búa til forrit, eða stef sem hægt er að nota á hvaða kerfi sem er, hvar sem er, ef það styður Java verkvanginn:
Með JavaTM tækni getur þú notað sama forritið á hvaða vél sem er --PC tölvu, Macintosh tölvu, net tölvu, eða jafnvel á nýjum tæknilausnum eins og Internet skjásíma.
Þannig að Java stef þarf ekki neinn auka hugbúnað til að virka. Þegar farið er fram á Java, þá eru allar starfseiningar þess sendar yfir netið til þess eða þangað sem beðið er um það og þá getur Java tæknihlutarnir sem taka við látið það virka.
Til að fræðast meira um Java skaltu skoða http://java.sun.com/
| gerð margmiðlunar: | java | |
| hvað hún gerir vel: | tól, gagnavinnsla, línurit og gröf, gagnvirk stýritæki, kviklegur texti, myndabreytingar. | |
| atriði sem þarf að skoða | einkunn | umsögn |
|---|---|---|
|
þröskuldur eða erfiðleikar
við að búa til þessa margmiðlun
|
lágur
|
Til að búa til þín eigin Java
stef verður þú að hafa skilning á forritunarmálinu
eða hafa aðgang að grafískum forritasmíðjum.
Það eru hins vegar mörg söfn Java stefja þar
sem hægt er að sækja þau og nota.
|
|
fjöldi notenda sem geta séð þessa
margmiðlun
|
fáir
|
Flestir vefskoðaðar með útgáfunúmer
3.x eða nýrra geta notað Java, þó það
virðist virka hægar og betur á Macintosh tölvum.
Það getur verið löng bið og tómur hvítur
ferningur á meðan veskoðarinn sækir Java.
|
|
bandvíddarnotkun
|
lág
|
Mjög mismunandi og fer eftir hvers konar gagnvirkni
á að fara fram og hversu flókið ferli er verið
að setja upp. Þegar Java stef er á síðu,
þá þarf hún að sækja allt frá
nokkrum til um 30 litlar skrár sem þurfa allar að komast
á leiðarenda áður en síðan virkar.
|
Eins og nefnt var í lexíu 27, þrátt fyrir það hve nöfnin eru lík, þá er Javascript-- skriftunarmál fyrir vefskoðara algerlega frábrugði Java, sem er forritunarmál fyrir tölvur. JavaScript er í raun þýtt línu fyrir línu þegar vefskoðarinn les síðuna. Java stef eru skrifuð sem tölvukóði og síðan vistþýdd (e. compiled) og þannig breytt í keyrsluhæft forrit. Vistþýtt forrit getur verið öflugra, öruggara og hraðvirkara en skrift, en á móti er erfiðara að búa það til.
Því miður, fyrir utan nokkur vel þekkt not fyrir Java, þá er algengast að þú finnir að á vefnum séu Java stef notuð til að sýna rennitexta á borða, sem annað hvort rennur lóðrétt eða lárétt (sjá hugmyndir okkar um slíkt í lexíu 17 !), eða mjög algeng not við að láta mynd líta út eins og hún speglist í vatni.
Eins og við sáum í síðustu lexíu um Shockwave, þá eru Java skrár venjulega lokaðir svartir kassar sem við veltum ekki einu sinni fyrir okkur hvernig virka. Í sumum stefjum getum við breytt eða stjórnað virkni þeirra með upplýsingum sem við sendum stefjunum með HTML kóða.
Í þessari lexíu verður ekki talað um hvernig Java forrit eru búin til, heldur ætlum við að sýna þér hvernig þú getur notað stef sem til eru á síðunni þinni.
Einföld útlistun á HTML kóða fyrir Java stef er
<APPLET CODE=MittStef.class WIDTH=XX HEIGHT=YY> </APPLET>þar sem MittStef.class er skjalnafn á vistþýddri Java stefskrá, og WIDTH og HEIGHT eru mál stefsins í pixelum. Oft getur verið að þú setjir frekari upplýsingar á stefið með stikum (e. parameter):
<APPLET CODE=MittStef.class WIDTH=XX HEIGHT=YY> <param name="stiki1" value=mitt1Gildi> <param name="stiki2" value=mitt2Gildi> </APPLET>
þar sem hver stiki hefur nafn sem stefið leitar að og eitthvert gildi sem getur verið textastrengur eða tala:
<APPLET CODE=MittStef.class WIDTH=XX HEIGHT=YY> <param name="stiki1" value="Tilgangur lífsins er ostur; <param name="stiki2" value=129; </APPLET>
Að lokum getur þu sett in texta sem sést bara ef vefskoðarinn getur ekki notað Java (mundu að vefskoðarinn hunsar allt innan oddklofa sem hann ekki skilur), svipað og að setja ALT kost með <img ...> skipunum (lexía 7a) eða <NOFRAMES> skipun á rammasíðu (lexía 26).
<APPLET CODE=MittStef.class WIDTH=XX HEIGHT=YY> <param name="stiki1" value=mitt1Gildi> <param name="stiki2" value=mitt2Gildi> Fyrirgefðu, en svo virðist sem vefskoðarinn þinn geti ekki sýnt þetta flotta Java stef. </APPLET>
Þannig sést að allur texti á milli <APPLET>...</APPLET> skipananna er hunsaður af vefskoðurum sem geta ekki spilað Java (þar sem þetta er hvorki stef skipun eða stikaskipun) og er það eina sem sést ef vefskoðarinn kann ekki á Java.
Athugaðu: Ef þú ert ekki með skjölin úr síðustu lexíu, þá getur þú sótt þau núna.
Í þessari lexíu ætlum við að nota Java stef sem gerir okkur kleyft að senda því myndarskrá og á vefsíðunni okkar gerir notandanum fært að stækka og minnka myndina. Myndirnar sem við ætlum að nota eru af bergi úr eldfjöllum mynduðu með sérstakri smásjá sem sýnir okkur steindir og og uppbyggingu bergsins. Síðan getum við notað Java stefið á vefsíðunni eins og nokkurs konar smásjá.
Java stefið sem við notum hér er kallað ImageZoom og þú getur fundið frekari upplýsingar um það á http://www.vivaorange.com/ImageZoom/. Þetta stef er ókeypis fyrir þá sem ekki taka peninga af síðunum sínum (við fundum það við að nota eina heimildina fyrir neðan).
Almenni HTML kóðinn fyrir þetta stef er:
<applet code="ImageZoom.class" width="[breidd]" height="[hæð]"> <param name="IMAGE" value="[myndarskrá]"> <param name="ZoomLevel" value="[stækkun]"> <param name="PanSpeed" value="[hraði]"> <param name="Cursor" value="[bendill]"> <param name="PRefresh" value="[forhlað]"> </applet>
þar sem:
Stefsráin sjálf , ImageZoom.class er bara 5k að stærð og myndin sem það notar er lesið inn sem stiki ásamt hinum kostunum sem listaðir eru hér fyrir ofan. Athugaðu vefsíðu stefsins til að fá frekari upplýsingr um það.
<html>
<head>
<title>Java smásjá</title>
</head>
<body bgcolor="#000000" text="#EEEEEE">
<center>
<applet code="ImageZoom.class" width=400 height=265 vspace=14>
<param name="IMAGE" value="pw_vis.jpg">
<param name="ZoomLevel" value="6">
<param name="PanSpeed" value="4">
<param name="cursor" value="1">
<param name="PRefresh" value="on">
Fyrirgefðu, en svo virðist sem vefskoðarinn þinn geti ekki sýnt þetta Java stef :-(
<p>Hérna er í það minnsta mynd úr smásjánni:<br>
<img src="pw_vis.jpg" width=400 height=265><p>
</applet>
<font face="verdana,helvetica" size="2">
<br>BISHOP GJÓSKA: Lauslega samanbrædd (Sýnilegt ljós)<br>
smelltu á myndina til að stækka hana, færðu músina að brún til að færa hanan
</center>
</body>
</html>
ATHUGAÐU: Við erum bara að nota eina af myndunum fjórum þarna; seinna sýnum við þér hvernig hægt er að gera þetta stef kviklegra. Við höfum líka sett nýjan stika, vspace í applet skipunina til að gefa 14 pixela bil fyrir ofan og neðan stefið á síðunni. (Þetta er svipað og við gerðum við myndirnar í lexíu 20)
Breidd, width, og hæð, height, myndarinnar eru 400 og 265 pixel. Við settum hina stikana þannig að það eru 6 mismunandi stækkanir, hraðinn er 4 og bendillinn er hendi. Athugaðu líka textann sem við settum innaní applet skipunina til að þeir sem hafa ekki vefskoðara sem skilur Java fái eitthvað á gluggann sinn. Svona geta þeir í það minnsta séð innihaldið, þó þeir geti ekki stækkað og fært myndina. Þú getur prófað þetta ef sú leitar í valkostum vefskoðarans og tekur Javaheimildina af (ekki gleyma að setja hana á aftur!).
Einnig kemur það fyrir á sumum tölvum (sérstaklega Macintosh tölvum), að Java stef breyta bendlinum sem notaður er í Netscape þegar maður er búinn að nota stefið.
ATHUGAÐU: Ef vefsíðan virkar ekki eins og hún á að gera, berðu þá þitt HTML skjal við þetta dæmi.
Við erum nú búin að sjá hvernig hægt er að sækja ImageZoom stefið með sérstakri mynd og síðan stækka hana og hreyfa til eins og maður væri að nota smásjá (í raun væri myndin mun skýrari við mikla stækkun í raunverulegri smásjá; á tölvuskjánum erum við bara að stækka hana upp og förum að sjá pixelin , ferköntuðu myndpunktana sem myndin er gerð úr).
En við getum gert þetta sveigjanlegra með því að nota smá JavaScript til að búa til HTML kóða fyrir stefið og þannig gera okkur kleift að velja úr röð mynda sem stefið getur sótt. Til að fræðast meira um slíka notkun á JavaScript, skaltu skoða aftur lexíu 27b. Til að gera þetta ætlum við að búa til rammasíðu (sjá lexíu 26) sem kemur til með að líta nokkurn vegin svona út:
| skoðunar
rammi
innihald og stef sjást hér |
| stjórn
rammi
fellivalmynd og JavaScript kóði skrifa innihald í efri rammann |
<html> <head> <title>Gosbergssmásjá</title> </head> <frameset rows="*,70" border=0> <frame src="stage.html" name="stage" marginheight="12" marginwidth="12" scrolling="auto" noresize> <frame src="controls.html" marginheight="8" marginwidth="8" scrolling="no" noresize> </frameset> <noframes> <h2 align=center>ATHUGAÐU: Þessi síða notar ramma, en svo virðist sem vefskoðarinn þinn geti ekki sýnt þá.</h2> </noframes> </html>
ATHUGAÐU: Þetta stillir upp vefsíðu með römmum þar sem neðri ramminn er 70 puixel á hæð og sá efri notar afganginn af plássinu. Athugaðu líka að eigindin marginheight og marginwidth gera manni kleyft að skilgreina spássíu eða bil á milli innihalds ramma og brúna hans.
<html> <head> <title>Smásjárskoðun</title> </head> <body bgcolor="#000000" text="#FFFF00"> <center> <table width=80% height=80% border=0 align=center> <tr> <td align=center> <h1>Gosbergssmásjá</h1> <font face="verdana,helvetica" size=3>Veldu bergsýni af valmyndinni fyrir neðan og smelltu á <b>sækja smásjá</b> til að skoða það eins og það væri í steinasmásjá. <p> Í hvert sinn sem þú smellir með músinni stækkar myndin. Hreyfðu músina að brún myndarinnar til að færa hana til hliðar (þessi færsla virkar aðeins þegar búið er að stækka myndina minnst einu sinni). <p> Þessi smásjá þarf vefskoðara sem getur unnið með Java. </td> </tr> </table> </center> </body> </html>
ATHUGAÐU: Þetta er bara skýringartexti sem kemur fyrst þegar síðan er opnuð. Athugaðu hvernig við notuðum stærðarskipanir úr síðasta hluta lexíu 21 fyrir töfluna til að miðja hana á gluggann.
<html>
<head>
<script language="JavaScript">
<!--
function scope( rockmenu ) {
// Kallað frá valmynd til að annað hvort setja upp skýringarmynd í efri rammann
// eða rita kviklegt innihald sem setja á í Java stef
// rock skilgrienir skráarnafnið, blurb er myndartextinn
rock = rockmenu[rockmenu.selectedIndex].value;
blurb = rockmenu[rockmenu.selectedIndex].text;
if (rock != "") {
// hunsa eyður úr valmyndinni og velja fyrsta valatriði aftur
rockmenu.selectedIndex = 0;
if (rock== "help") {
// velja hjálp, hlaða upphafssíðu
parent.frames[0].location.href="stage.html";
rockmenu.selectedIndex = 0;
} else if (rock== "close") {
// kalla á fall sem lokar glugganum
close_scope();
rockmenu.selectedIndex = 0;
} else {
// hlaða valda mynd í stef
with (parent.frames[0]) {
document.write('<html><head><title>' + blurb + '</title></head>');
document.write('<body bgcolor="#000000" text="#EEEEEE">');
document.write('<center><applet code="ImageZoom.class"');
document.write(' width=400 height=265 vspace=14>');
document.write('<param name="IMAGE" value="'+ rock +'.jpg">');
document.write('<param name="ZoomLevel" value="6">');
document.write('<param name="PanSpeed" value="4">');
document.write('<param name="cursor" value="1">');
document.write('<param name="PRefresh" value="on">' );
document.write('Fyrirgefðu, en vefskoðarinn þinn getur ekki sótt þetta Java stef :-(');
document.write('<p>En hérna er í það minnsta mynd as sýninu:<br>');
document.write('<img src="'+ rock +'.jpg" width=400 height=265><p>');
document.write('</applet>');
document.write('<font face="verdana,helvetica" size="2">');
document.write('<br>BISHOP GJÓSKA: ' + blurb);
document.write(' smelltu til að stækka,hreyfðu mús að brún til að færa</center>');
document.write('</body></html>');
document.close();
}
}
}
}
function close_scope() {
// setja upp staðfestingarboð áður en glugga er lokað
if ( confirm( "Ertu viss um að þú viljir loka smásjánni?" ) ) {
parent.close();
}
}
//-->
</script>
</head>
<body bgcolor=#333333 text=#FFFFFF link="#CCFFFF" vlink="#FFCC99">
<center>
<form>
<font face="verdana,helvetica" size=1>java smásjá</font><br>
<select name="rock" onChange="scope(this)">
<option value="">Veldu sýni...
<option value="dw_vis">Þétt sambrædd Bishop gjóska (sýnilegt ljós)
<option value="dw_pol">Þétt sambrædd Bishop gjóska (skautað ljós)
<option value="pw_vis">Lauslega sambrædd Bishop gjóska (sýnilegt ljós)
<option value="pw_pol">Lauslega sambrædd Bishop gjóska (skautað ljós)
<option value="">------------------
<option value="close">Loka smásjá
<option value="help">Hjálp
</select>
</form>
</center>
</body>
</html>
ATHUGAÐU: Þetta er dálítið mikið af kóða! Valmyndin sem búin er til í stjórnrammanum sendir skilaboð í hvert sinn sem henni er breytt. Javascript fallið skoðar innihaldið í value fyrir það atriði sem er valið. Ef það er tómt, þá er ekkert gert. Ef það er help, þá erupphafssíðan einfaldlega sett upp aftur, Ef það er close, þá er kallað á JavaScript fall sem fyrst sýnir staðfestingarglugga og, ef notandinn smellir á OK, þá lokar það öllum glugganum.
Öll mesta vinna er framkvæmd þegar valmyndin sendir skráarnafn myndar. Þá er allur HTML kóði efri rammans endurskrifaður til að sækja stefið með ákveðinni mynd og rita myndartexta fyrir myndina, sem fenginn er úr valmyndinni sjálfri.
Þegar Java síðan er farin að virka, þá þurfum við að setja upp stiklu sem opnar hana í sér glugga, eins og við gerðum í fyrri margmiðlunarlexíum.
Snúnu hólfin hér eru lofthólfin sem festust innan í berginu þegar þaðog breyttu honum þannig að hann verði svona:
þeyttist upp úr eldfjallinu.
<br clear=right>
Snúnu hólfin hér eru lofthólfin sem festust innan í berginu þegar það
þeyttist upp úr eldfjallinu.
<p> Til að sjá nákvæmari mynd af gosbergi, prófaðu <a href="../scope/index.html" onClick="window.open('../scope/index.html',
'scope', 'width=540,height=480,status,menubar'); return false"
onMouseOver="window.status='opna gosbergssmásjá'; return true">Gosbergssmásjána okkar</a> (þarf Java) <br clear=right>
Berðu þínar vefsíður saman við þetta dæmi um hvernig þær ættu að líta út. Ef þínar síður eru ekki eins og dæmið, eða stiklurnar virka ekki rétt, skoðaðu textann sem þú ritaðir í textaritlinum. Berðu þína vinnu við HTML kóðann saman við dæmin (leitaðu að orðinu Source í View valmynd vefskoðarans).
Upprifjunarefni fyrir þessa lexíu:
Prófaðu ImageZoom stef með þínum eigin myndum. Skoðaðu hvernig það breytist ef þú breytir sumum stikunum.
Þó Java sé hástigs forritunarmál, þá eru til fjöldi setra þar sem hægt er að fá ókeypis stef sem maður getur notað á sínar eigin síður.
Til að fá frekari upplýsingar um Java stef, skoðaðu heimildalistann um Java námskeið. Skoðaðu líka CNET Java Center og aðal Java síðuna hjá Sun.
HTML hefur breyst mikið síðan við skrifuðum þetta
námsefni árið 1994! Við ætluðum að setja
nýjar lexíur um Dynamic HTML, Cascading Style Sheets, og hugsanlega
jafnvel XML vorið 2000. En, þar sem þetta eru miklu yfirgripsmeiri
viðföng en HTML (og myndu stækka mjög þennan pakka),
þá höfum við nú ákveðið að búa
til sér námsefni í þessu.
Þar sem það mun líkast til ekki sjá dagins ljós
fyrr en vorið 2001, þá höfum við valið önnur
áreiðanleg námskeið sem þú getur skoðað
á tilvísanasíðum okkar.
Þangað til, haltu áfram að skrifa frábærar
HTML síður.
Námsefnisgerð í HTML:
Lexía 29e: Smá bolli af Java
©1994 - 2000 Maricopa Center
for Learning and Instruction (MCLI)
Maricopa Community Colleges
Tengiliður MCLI er Alan Levine
Sendu athugasemdir til alan.levine@domail.maricopa.edu
eða gaui@mmedia.is
URL: http://www.vma.is/tut/tut29e.html
Þýtt með leyfi höfundar