Eftir þessa lexíu átt þú að kunna að:
Í árdaga (1993!)... voru aðeins til fáeinar síður... að mestu texti með nokkrar myndir. Nú er þó nokkuð meira sem hægt er að hlaða upp á vefsíðu til að heilla skynfærin. Það er hægt að setja miðlunarefni svo sem hreyfingar, teiknimyndir, kvikmyndarbrot, hljóð, gagnvirk forrit (það eru engar lyktarviðbætur til enn sem komið er). Og sumar vefsíður nota þetta allt, nokkrum sinnum, á einni síðu, jafnvel svo að það er ógerlegt að horfa á þetta (eða bíða eftir því að sækja það). Ef þú vilt virkilega smakka á nokkrum, skoðaðu þá Good, Bad, and Bandwidth-Hogging Ugly hjá WebHound.
Í næstu lexíum ætlum við að skoða hvernig hægt er að setja nokkrar gerðir margmiðlunar á Eldfjallavefinn. Við getum auðvitað ekki fjallað um allar gerðir margmiðlunar sem til eru, bara þær sem eru aðgengilegastar eða nytsamastar fyrir þig . Við getum heldur ekki farið í það hvernig svona margmiðlunarefni er búið til (til þess þyrfti nokkurra ára setu við að skrifa námsefni) en við ætlum, þar sem það er mögulegt, að sýna þér hvar hægt er að nálgast margmiðlunarefni sem er ókeypis..
Áður en þú notar margmiðlun af einhverju tagi, þá þarftu að íhuga vandlega hverju hún getur bætt við innihald vefsíðnanna þinna. Jú, mikið rétt, fyrstu dansandi hreyfi-gif myndirnar sem þú sást voru skemmtilegar eða áberandi, en þær geta líka verið truflandi og,eftir smá tíma, tuggulegar. Þess vegna verður fyrsta spurning þín að vera Mun þetta [hljóð, kvikmynd, stef, teiknimyndir] bæta mikilvægum upplýsingum við vefinn minn? Andstæð spurning gæti verið Er þetta [hljóð, kvikmynd, stef, teiknimyndir] bara [gluggaskraut, augnakonfekt, o.s.frv. ...]?
Þegar þú ákveður að setja margmiðlunarefni á vefinn þinn, þá þarftu fyrst að athuga Hvað þarf ég að nota til að búa til svona [kvikmyndarbrot, hljóðskrá, Java stef]? Þú gætir þurft sérstakan tækjabúnað, hugbúnað, þekkingu, og framar öllu, tíma. Sem betur fer eru til aðrir kostir -- þú getur fundið og notað söfn margmiðlunarefnis, eða það sem á ensku kallast clip media.
Fyrir hvert margmiðlunaratriði sem þú notar, þá eru aðrir kostnaðarliðir sem þú ert að leggja á notendur vefsins. Þú ættir að spyrja þig Krefst þetta margmiðlunarefni einhvers sérstaks búnaðar (viðbætur (e. plug-in), Active-X stýringar, annars eða nýrri vefskoðara)? Þegar notandi á vefnum þínum er búinn að sækja og setja upp viðbót og stundum endurræsa tölvuna sína, þá eru þeir oft algerlega búnir að gleyma vefnum þínum!
Annar kostnaðarliður við að nota margmiðlun er tími. Spurðu þig Hversu langan tíma tekur það fyrir innihaldið að hlaðast á tölvu notandans og sýna sig þar? Því lengri tíma sem þetta tekur, því líklegra er að notendur bíði eða komi aftur. Jú, tónlistin spilar, myndirnar hreyfast og kvikmyndin rúllar þegar þú prófar þetta á tölvunni þinni, en það er ekki reynslan sem aðrir munu hafa á gamalli tölvu sem tengd er við Internetið með hægfara mótaldi og vefskoðara frá því í fyrra.
Þetta þýðir að þú þarft að giska dálítið á hverjir það munu vera sem koma á vefinn þinn. Ef þú veist að hann verður aðeins skoðaður innanhúss á hraðvirku staðarneti, þá getur þú áhyggjulaust notað bandvíddarfreka margmiðlun. Ef þú veist að efnið þitt verður aðeins skoðað í kvöldskóla með Útgáfu 4.9xgi af SpiffGo vefskoðaranum, þá getur þú notað uppsetningar sem þurfa að nota sérstakar viðbætur sem aðeins sá vefskoðari notar.
En það er þó líklegra að þú viljir að öll veröldin geti séð vefinn þinn (þetta er ekki kallað veraldarvefur fyrir ekki neitt), og þá getur þú ekki gefið þér neitt um það hvernig notendurnir eru tengdir við internetið, hvaða tölvur þeir nota o.s.fv. Við mælum með að þú sért spar á (og hugmyndaríkur í) notkun á margmiðlunarefni og gefir aðra kosti þar sem það er viðeigandi.
Í næstu lexíum ætlum við að gefa dæmi um hvernig hægt er að setja GIF teiknimyndir, kvikmyndarbrot, hljóðskrár, Shockwave gagnvirkni, Flash, og Java á vefsíðurnar. Fyrir hverja margmiðlunargerð gefum við notkunaryfirlit í töflu eins og þessari sem hér er sýnd.
| gerð margmiðlunar: | (nafn margmiðlunargerðar) | |
| hvað hún gerir vel: | (gerð gagna sem hún vinnur best með) | |
| atriði sem þarf að skoða | einkunn | umsögn |
|---|---|---|
| þröskuldur eða erfiðleikar við að búa til þessa margmiðlun | lágur
|
hvað þarf til að búa til eða sækja þessa gerð margmiðlunaefnis |
| fjöldi notenda sem geta séð þessa margmiðlun | fáir
|
hlutfallslegur fjöldi notenda sem geta séð þessa gerð margmiðlunarefnis |
| bandvíddarnotkun | lág
|
tími og áhrif á skráarstærð við notkun þessarar gerðar margmiðlunarefnis |
Þessi einkunnagjöf er bara viðmið sem hjálpar þér að ákvarða hvort þú vilt nota viðkomandi gerð margmiðlunar eða ekki, og hún er frekar huglæg og byggð á reynslu okkar við að nota þær allar. Mikilvægast er enn og aftur að íhuga hvaða gildi þessar gerðir margmiðlunar hafa á efnið sem þú ert að reyna að koma frá þér.
Ein aðferð við að setja margmiðlunaerfni á vefsíðu er að gera hana að valfrjálsum stiklum á aðalsíðunum þínum. Það þýðir að frekar en troða 5 Mb kvikmyndarbroti á síðuna þína, þá setur þú stiklu á kvikmyndarbrotið. Á þann hátt getur notandinn ákveðið hvort hann vill skoða kvikmyndina. Við gerum þetta fyrir flest dæmin, þ.e. búum til stiklur sem sýna margmiðlunarefni í sér vefskoðaraglugga og notum til þess JavaScript tækni sem við lærðum um í lexíu 28c.
Þetta er kynning og því höfum við ekki breytt síðunum okkar á neinn hátt.
Upprifjunarefni fyrir þessa lexíu:
Hér eru nokkrar tilvísanir í síður sem þú gætir nýtt þér:
Margmilunarhluti númer 1... Bætum við GIF mynd sem gerir meira en bara sitja kyrr!
Námsefnisgerð í HTML:
Lexía 29: Margmiðlun á síðu
©1994 - 2000 Maricopa Center
for Learning and Instruction (MCLI)
Maricopa Community Colleges
Tengiliður MCLI er Alan Levine
Sendu athugasemdir til alan.levine@domail.maricopa.edu
eða gaui@mmedia.is
URL: http://www.vma.is/tut/tut29.html
Þýtt með leyfi höfundar