Eftir þessa lexíu átt þú að kunna að:
Í næstu þrem lexíum ætlum við að læra að búa til vefsíðuform. hvað eru form? Þú hefur alveg örugglega séð þau og notað þau á öðrum vefsíðum. Við erum með slíkt á skráningarsíðunni fyrir fyrrverandi nemendur, en það er síða þar sem þú getur sent okkur upplýsingar um hvað þú hefur lært í Námsefnigerð í HTML.
Form eru notuð til að auka gagnvirkni vefsíðna, gera samskipti á milli vefsíðu og notanda möguleg, til að safna upplýsingum og til að gefa nýja möguleika á stýringu í gegnum vef.
Formið sækir mismunandi ílagsgögn frá notanda, þ.e. frá textareitum, valmyndum, og valhnöppum. Vefskoðarinn tekur þessar upplýsingar, vefur þeim saman í pakka og sendir þær beint til vefþjónsins, þar sem sérsmíðuð forrit bíða eftir þeim. Þessi forrit geta síðan afpakkað upplýsingarnar, unnið með þær, geymt þær og sent viðeigandi svör til notandans.
Í næstu lexíu lærir þú að skrifa HTML til að sýna mismunandi formhluta, eins og þá sem sjást efst á þessari síðu síðu. Síðan munum við sýna þér hvernig þú getur látið formið virka með því að senda upplýsingarnar í tölvupósti og líka með því að láta eitt af þessum sérsmíðuðu vefþjónsforritum (CGI) vinna úr þeim. Að lokum sýnum við þér hvernig þú getur notað JavaScript til að vinna úr upplýsingunum á sama hátt og CGI án þess að fara út í meiriháttar forritun eða uppsetningu á vefþjóni.
Þetta er kynning, og því höfum við ekki breytt verkefninu okkar á neinn hátt.
Upprifjunarefni fyrir þessa lexíu:
Námsefnisgerð í HTML:
Lexía 28: Dálítið FORM sett á síðurnar
©1994-2000 Maricopa Center
for Learning and Instruction (MCLI)
Maricopa Community Colleges
Tengiliður MCLI er Alan Levine
Sendu athugasemdir til alan.levine@domail.maricopa.edu
eða gaui@mmedia.is
URL: http://www.vma.is/tut/tut28.html
Þýtt með leyfi höfundar