Ruglaður? Þetta er bara ein aðferð til að búa til flottar
skiptingar á milli skjalhluta.
Fyrstu viðbætur frá Netscape buðu upp á sniðeigindi fyrir strik- eða <hr> skipunina (e. Horizontal Rule) -- sjá lexíu 4). Netscape vefskoðarar sýna sjálfgefið strik í þrívídd (með dýpt) og skugga frekar en heilt strik eins og hafði verið í vefskoðurum áður.
<hr size=N>þar sem N er þykkt línunnar í pixelum. Við skulum skoða nokkur dæmi sem skýra muninn á þessu.
|
<hr size=2> sama og <hr> :
<hr size=8> : <hr size=20> : |
<hr width=X> <hr width=Z%>þar sem X er fjöldi pixela en Z er prósentuhlutfall af skjánum. Við mælum venjulega með því að prósentan sé notuð, því hún stillir lengd striksins sjálfkrafa í hlutfall af vefskoðaraglugganum sem notandinn hefur (það er til fólk sem er með tveggja síðna hálausnarskjái á meðan aðrir eru að rýna í 13 tommu skjái).
Hér eru nokkur dæmi (taktu eftir hvernig við notum „size“ eigindið líka):
|
<hr width=80 size=10> :
<hr width=80% size=10> : |
ATHUGAÐU: Prófaðu að stækka og minnka vefskoðaragluggann og sjáðu muninn á hegðun strikanna eftir því hvort þau eru skilgreind sem fastur fjöldi pixela (width=80) eða þegar þau eru skilgreind sem prósentur af skjábreidd (width=80%)
|
<hr width=40% size=10> : <hr width=5% size=10> : |
|
<hr width=80% size=6 noshade> :
<hr width=60% size=1 noshade> : |
Gerðu tilraunir með sum eigindi <hr> skipunarinnar í vefsíðununum þínum.
Námsefnisgerð í HTML:
Lexía 19: Strik í reikninginn
©1994 - 2000
Maricopa Center for Learning and Instruction (MCLI)
Maricopa Community Colleges
Tengiliður MCLI er
Alan Levine
Sendu athugasemdir til alan.levine@domail.maricopa.edu
eða gaui@mmedia.is
URL: http://www.vma.is/tut/tut19.html
Þýtt með leyfi höfundar