
Sýnipróf
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
SÁL 403
Lokapróf
1. Veljið og fjallið
ýtarlega um annað af eftirtöldum umræðuefnum. Svörin við þessari
spurningu gilda 30% af prófinu.
a) Návist annarra.
Um hvaða þrjú rannsóknarsvið er fjallað í kennslubókinni og hvað er
það helsta sem fram kemur um hvert svið fyrir sig.
b) Stöðugleiki
persónuleikans. Gerið grein fyrir umræðum um og rannsóknum á stöðugleika
persónuleikans. Fjallið sérstaklega um deilur atferlissinna og "persónuleikasinna"
um það hvort persónuleiki sé stöðugur frá einum aðstæðum til annarra.
2. Gerðu þokkalega
góða grein (u.þ.b. 10 línur um hvert atriði) fyrir fimm af eftirfarandi
hugtökum: (40%)
a) Skematísk
vitneskjuvinnsla
b) Skýringar
á aðdráttarafli
c) Frávarpspróf
d) Fylgniregla
e) Hugmisræmiskenningin
f) Rannsóknir
á aðsemd (conformity)
g) Félagsnámskenning
um eðli persónuleikans
3. Útskýrið í
stuttu máli merkingu og samhengi eftirfarandi hugtakapara (30%):
a) Innri persónuleiki
- Ytri persónuleiki
b) Frumhrif
- Nándarhrif
c) Eignun
þátttakanda - Eignun áhorfanda
d) Innri þéttni
- Ytri þéttni
e) Hneigðareignun
- Aðstæðubundin eignun

|