Fjarkennsla
SÁL403

Kynning á viðfangsefni og vinnubrögðum
Áfanginn
SÁL403 er einn af fjórum sálfræðiáföngum sem boðið er upp á í fjarkennslu
Verkmenntaskólans á Akureyri. Viðfangsefnið er; sálfræðileg próf, persónuleika-
og félagssálfræði, þrjú stór og spennandi svið sálfræðinnar sem ekki hafa
fengið sérstaka umfjöllun í öðrum áföngum. Þeir nemendur sem tekið hafa
áfangann SÁL203 hafa þó að öllum líkindum fengið einhverja umfjöllun um
greinarpróf en sú skörun sem er hvað varðar umfjöllun um þetta efni er
saklaus að mati undirritaðs.
Námsefninu
er skipt í 12 hluta og er ætlast til þess að nemendur taki námsefnishlutana
fyrir einn af öðrum næstu 12 vikurnar. Nemendur lesa þann hluta námsefnisins
sem til umfjöllunar er á hverjum tíma (sjá kennsluáætlun) og taka mið
af þeim áherslum sem er að finna í viðeigandi kennslubréfi. Flestum kennslubréfum
fylgja verkefni sem nemendur eiga vinna og senda til kennara um leið og
efnið er tekið fyrir. Kennari mun senda stutta umsögn um verkefnið
fljótlega eftir að það berst til hans og ábendingar varðandi lausn verkefnisins
munu í sumum tilvikum einnig birtast á fjarkennsluvefnum.
Verkefni
ber að skila í síðasta lagi 14 dögum eftir að lesefnið sem það tengist
er tekið á dagskrá. Verkefni sem skilað er eftir að skilafrestur er liðinn
er ekki reiknað inn í vetrareinkunn en nemendur þurfa einungis að skila
10 verkefnum (af 12). Skili nemendur fleiri verkefnum en 10 þá er vetrareinkunn
byggð á þeim 10 sem best eru.
Samskipti
nemenda og kennara eru þannig með nokkuð öðrum hætti í þessum áfanga en
algengast er í fjarkennslu Verkmenntaskólans. Þið fáið ekki vikulegar
sendingar með leiðbeiningum og verkefnum. Þess í stað eigið þið að
fara inn á fjarkennslusíðu áfangans í hverri viku (bréfin verða til í
endanlegri útgáfu á hverjum mánudegi) og lesa þar yfir kennslubréf og
verkefni vikunnar. Auðvitað getið þið tekið afrit af bæði kennslubréfi
og verkefni ef ykkur sýnist svo og eins er hægt að prenta hvert bréfin
út.
Allt
efni áfangans er nú fyrirliggjandi á vefsíðum þeim sem honum eru helgaðar.
Þetta er efnið eins og það var notað síðast. Ykkur er heimilt að skoða
allt efnið en ég geri hugsanlega breytingar á því þannig að hvert kennslubréf
og verkefni sem tengist því er ekki komið í endanlega mynd fyrr en það
er á dagskrá (þannig er 5. kennslubréf t.d. ekki í endanlegri útgáfu fyrr
en í 5. kennsluviku þegar það er á dagskrá)
Auk
leiðbeiningabréfa, verkefna og verkefnalausna finnið þið kennsluáætlun
annarinnar, kaflaspurningar, slóðir og prófsýnishorn á fjarkennsluvef
áfangans.
Allt
eru þetta síður með stuðningsefni sem eiga að að geta hjálpað ykkur við
námið.
Kennsluáætlun
skoðið þið til þess að átta ykkur á meginatriðum varðandi námsframvindu
eða námsmat.
Vefslóðirnar
(áhugavert efni...) liggja inn á síður úti í hinum stóra heimi þar sem
fjallað er með einhverjum hætti um viðfangsefni áfangans. Að minnsta kosti
eitt af verkefnum annarinnar verður ekki leyst öðru vísi en að nýta sér
þessa síðu.
Á
síðunni prófsýnishorn er svo að finna dæmi um lokapróf.
Hvernig
á nemandi í áfanganum að vinna?
 |
Hann skoðar kennsluáætlun
í upphafi og lítur síðan á hana ef hann er að velta
fyrir sér námsmati, lesefni eða hvað sé framundan í námsefninu.
|
 |
Hann fer inn á síðuna
kennslubréf og verkefni í
hverri viku, les leiðbeiningabréfin með námsefninu
og vinnur verkefnin.
|
 |
Hann lítur yfir spurningar
hvers kafla að loknum lestri hans og athugar
hvort hann ráði ekki örugglega þær.
|
 |
Hann kíkir út í heim
á síður
þar sem sambærilegt efni er til umfjöllunar.
|
 |
Hann skoðar sýniprófið
undir lok annarinnar og þegar hann vill átta sig á uppbyggingu eldri
prófa.
|
Þessi sjálfvirkni þýðir þó ekki að þið nemendur
eigið ekki að vera í neinu sambandi við kennara. Þið eigið alltaf þann
möguleika að senda línu og spyrja um það sem vefst fyrir ykkur varðandi
vinnubrögð eða námsefni. Auk þess sendið þið vikulega verkefnin ykkar
og ég sendi ykkur vikulega viðbrögð við þeim.
Hér læt ég staðar numið. Það er
mjög mikilvægt að þið gerið ykkur skýra grein fyrir því hvernig vinnan
í áfanganum á að ganga fyrir sig. Ef það er eitthvað
sem þið ekki skiljið eða viljið fá frekari umfjöllun um þá sendið þið
mér línu.



|