Atkinson, Atkinson
og Hilgard: Sálfræði 2. (Farið verður yfir efni í köflum 10, 11,
14, 15 og 16.)
Markmið áfanga:
Að halda áfram
kynningu á sálfræði og viðfangsefnum hennar þannig að nemandinn geri
sér grein fyrir gildi sálfræðinnar sem vísindagreinar og öðlist jafnframt
þekkingu sem nýtist honum í daglegu lífi. Efni þessa áfanga má gróflega
skipta í tvo megin hluta. Framan af verður fjallað um fyrirbæri eins
og hvatir og þarfir, svengd og offitu, kynhvöt, árásarhneigð, kvíða
og um tilfinningar almennt. Síðan tekur við umfjöllun um frávikshegðun
(geðsjúkdóma), almennar orsakir hennar, flokkun og líklegar orsakir
einstakra vandamála. Jafnframt verður rætt um þær aðferðir sem notaðar
eru af sálfræðingum og geðlæknum til þess að eyða hegðun af þessu
tagi (lækna geðsjúkdómana).
Kennsluform:
Kennslubréf
(fyrirlestrar) sem nemendur skoða vikulega á vefsíðu áfangans. Kennslubréf
vikunnar verða tilbúin á mánudögum. Verkefnavinna nemenda.
Námsmat:
Próf í annarlok
70%, verkefni 30%. Nemendum ber að skila að lágmarki
10 verkefnum af 12 til að eiga rétt á próftöku.
Nemendur þurfa að ná 45% árangri á lokaprófi til að verkefnaeinkunn
gildi.

Tímaáætlun
annarinnar: