|
|
SÁL303
FjarkennslaKynning á áfanga og vinnubrögðum Áhugavert efni á öðrum vefsíðum
|
Kynning á viðfangsefni og vinnubrögðum
Áfanginn SÁL303 er einn af fjórum sálfræðiáföngum sem boðið er upp á í fjarkennslu Verkmenntaskólans á Akureyri. Viðfangsefnið er hvatræn hegðun, tilfinningar og geðræn vandamál með höfuðáherslu á síðasttalda atriðið. Nemendur sem stunda nám í áfanganum þurfa að hafa lesið námsefni áfangans SÁL103 og SÁL203 í það minnsta þurfa þeir að kunna skil á nokkrum þeim atriðum sem þar er fjallað um. Æskilegt er að nemendur hafi nokkra þekkingu á stefnum sálfræðinnar, sambandi taugakerfis og hegðunar, erfðarannsóknum og lögmálum námssálfræðinnar. Námsefninu er skipt í 12 hluta og er ætlast til þess að nemendur taki námsefnishlutana fyrir einn af öðrum næstu 12 vikurnar. Nemendur lesa þann hluta námsefnisins sem til umfjöllunar er á hverjum tíma (sjá kennsluáætlun) og taka mið af þeim áherslum sem er að finna í viðeigandi kennslubréfi. Í lok hvers kennslubréfs er verkefni sem nemendur eiga vinna og senda til kennara um leið og efnið er tekið fyrir. Kennari mun senda stutta umsögn um verkefnið fljótlega eftir að það berst til hans og staðlað svar við verkefninu verður síðan opinberað á vefnum um leið og skilafrestur er liðinn. Eðlilegast er að vinna verkefnin í Word eða sambærilegu ritvinnsluforriti og senda þau sem viðhengi í tölvupósti til kennara. Einnig kemur til greina að svara verkefnum beint með tölvubréfi. Verkefnin gilda 30% af lokaeinkunn í áfanganum. Verkefni sem skilað er eftir að skilafrestur er liðinn er ekki reiknað inn í vetrareinkunn en nemendur þurfa einungis að skila 10 verkefnum (af 12). Skili nemendur fleiri verkefnum en 10 þá er vetrareinkunn byggð á þeim 10 sem best eru. Samskipti nemenda og kennara eru með nokkuð öðrum hætti í þessum áfanga en algengast er í fjarkennslu Verkmenntaskólans. Þið fáið ekki vikulegar sendingar með leiðbeiningum og verkefnum. Þess í stað eigið þið að fara inn á fjarkennslusíðu áfangans í hverri viku (kennslubréfin verða til á vefsíðuformi í endanlegri útgáfu á hverjum mánudegi) og lesa þar yfir kennslubréf og verkefni vikunnar. Auðvitað getið þið tekið afrit af bæði kennslubréfi og verkefni ef ykkur sýnist svo og eins er hægt að prenta hvert bréf út. Þið hafið síðan 14 daga til að skila verkefni vikunnar. Því á í síðasta lagi að skila á sunnudegi, 2 vikum eftir að það er lagt fyrir. Auk leiðbeiningabréfa, verkefna og verkefnalausna finnið þið kennsluáætlun annarinnar, æfingapróf, kaflapróf, slóðir og prófsýnishorn á fjarkennsluvef áfangans. Allt eru þetta síður með stuðningsefni sem eiga að að geta hjálpað ykkur við námið. Kennsluáætlun skoðið þið til þess að átta ykkur á meginatriðum varðandi námsframvindu eða námsmat. Æfingaprófið er miðannarpróf sem þið getið tekið til þess að fá viðbrögð kennara við stöðu ykkar á miðri önninni. Kaflaprófin eru gagnvirk krossapróf sem ætlast er til að nemendur taki í lok hvers kafla. Vefslóðirnar (áhugavert efni...) liggja inn á síður úti í hinum stóra heimi þar sem fjallað er með einhverjum hætti um viðfangsefni áfangans. Eins og flestir vita er gríðarlegt magn upplýsinga á vefnum um allt milli himins og jarðar. Á þeim vefsíðum sem þessar slóðir tengjast er hægt að fá nasasjón af þessu upplýsingaflóði. Á síðunni prófsýnishorn er svo að finna dæmi um lokapróf. Nemandi sem ætlar sér að nýta sér fjarkennsluvef SÁL303 til fulls notar allar þessar síður eitthvað.
Þessi sjálfvirkni þýðir þó ekki að þið nemendur eigið ekki að vera í neinu sambandi við kennara. Þið eigið alltaf þann möguleika að senda línu og spyrja um það sem vefst fyrir ykkur varðandi vinnubrögð eða námsefni. Auk þess sendið þið vikulega verkefnin mín og ég sendi ykkur vikulega viðbrögð við þeim. Fjarkennsluvefurinn er nú eins og hann var notaður á síðustu önn. Ég mun gera breytingar á kennslubréfum og verkefnum í einhverjum tilvikum þannig að þó svo að þið getið skoðað efni fyrir allan áfangann nú þegar þá er ekki þar með sagt að ekki verði gerðar breytingar á því síðar á önninni. Endanleg mynd hvers kennslubréfs og verkefnis liggur ekki fyrir fyrr en það kemst á dagskrá. Hér læt ég staðar numið. Ef það er eitthvað sem þið ekki skiljið eða viljið fá frekari umfjöllun um þá sendið þið mér línu. |