Verkmenntaskólinn á Akureyri
Fjarkennsla

 

ENS 193 heimasíða.


Efni:

Inngangur
Tenglar í verkefnapakka
Tengill í efnisyfirlit málfræði - Málfræði


Inngangur

Um áfangann ENS 193 segir svo í námsskrá Verkmenntaskólans á Akureyri:

"Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem ekki teljast nægilega vel undirbúnir til þess að takast á við Ens102. Lesinn er léttur texti og gerðar æfingar og stílar úr honum. Töluverð áhersla á málfræði með tilliti til þeirra áfanga sem á eftir koma."

Í því efni, sem er kennt í áfanganum í fjarkennslu og einnig í dagskóla, er byggt á því, sem segir í áfangalýsingunni. Nemendum er veitt mikil aðstoð við nám sitt, enda gert ráð fyrir, að grunnur þeirra sé veikur. Miklu skiptir, að nemendur nýta aðstoðina vel.

Þegar fjarkennslan á í hlut, er hún

1) Þýðingarbútar þeir, sem eru útskýrðir á vefsíðum, eru einnig í því verkefnaskjali, sem sent er í tölvupósti. Nemendur hafa val um það, hvort þeir vinna þessa búta á vefnum eða í skjalinu, sem kemur í tölvupósti.
2) Þær málfræðiæfingar, sem eru á vefnum, eru einungis þar. Þær ber að vinna, enda eru þær óhjákvæmilegur hluti af yfirferð áfangans.

Sú aðstoð, sem felst í þeim lið, sem síðastur er talinn, er mjög mikilvæg. Hana verða nemendur að nýta sér mjög  vel með því að fara vel yfir leiðréttingar og fylgja náið þeim leiðbeiningum, sem kennarinn gefur, og þeim ábendingum, sem hann lætur frá sér fara um endurvinnu, upprifjun og annað. Einungis sé þessu fylgt er von um góðan árangur.


Tenglar í verkefnapakka

Af þessari heimasíðu er farið inn á síður einstakra hluta verkefnapakka. Það er gert með því að smella með músinni á tenglana hér fyrir neðan.

   
Pakki 01 Vefæfingar 01
Pakki 02 Vefæfingar 02
Pakki 03 Vefæfingar 03
Pakki 04 Vefæfingar 04
Pakki 05 Vefæfingar 05
Pakki 06 Vefæfingar 06
Pakki 07 Vefæfingar 07
Pakki 08 Vefæfingar 08
Pakki 09 Vefæfingar 09
Pakki 10 Vefæfingar 10
Pakki 11 Vefæfingar 11
Pakki 12 Vefæfingar 12

Tengill í efnisyfirlit málfræði - Málfræði

Með því að smella með músinni á orðið "Málfræði" ferðu yfir á síðu efnisyfirlists málfræðinnar

Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Vefsíðugerð: Guðjón Ólafsson gaui@vma.is