Ef kennarinn hefur gefið þér frjálsar
hendur með umræðuefni, þá eru möguleikarnir
endalausir. Stundum gerir það verkefnið helmingi
erfiðara. En þetta þýðir í raun
að þú getur valið það efni sem
þú hefur áhuga á og það gerir
ritgerðina betri og sterkari.
Skilgreindu tilganginn
Það fyrsta sem þú þarft
að athuga er tilgangurinn með ritgerðinni sem þú
átt að skrifa. Er tilgangurinn sá að fá
fólk til að trúa því sama og þú,
að útskýra fyrir fólki hvernig á
að framkvæma eitthvert verk, að fræða
fólk um eihverjar persónur, staði, hluti eða
hugmyndir, eða er tilgangurinn einhver allt annar? Efnið
sem þú velur verður að henta þessum
tilgangi.
Notaðu hugarflæði til að finna áhugaverð
efni
Þegar þú ert búin(n) að skilgreina
tilgang ritgerðarinnar, þá skaltu skrifa niður
nokkur efni sem þú hefur áhuga á. Sama
hver tilgangurinn er, þá ættir þú
að geta fundið fjöldan allan af umræðuefnum.
Ef þú ert í vandræðum með að
finna efni skaltu horfa í kringum þig. Er eitthvað
í umhverfi þínu sem vekur áhuga þinn?
Hugsaðu um líf þitt. Hvað tekur mestan tíma
þinn? Það gæti verið gott efni. Ekki
leggja mat á efnin strax; skrrifaðu bara niður
allt sem þér dettur í hug.
Leggðu mat á hvern möguleika
Ef þú getur hugsað upp nokkur efni sem gætu
gengið, þá liggur næst fyrir að skoða
hvert og eitt fyrir sig. Veltu fyrir þér hvað
þér finnst um efnið. Ef þú átt
að fræða, vertu þá viss um að þú
vitir þó nokkuð um efnið. Ef þú
átt að sannfæra, þá skaltu athuga
að þú sért meira en lítið áhugasamur/söm
um efnið. En mikilvægasti þátturinn í
að velja efni er fjöldi hugmynda sem þú
hefur um það.
Þó ekkert efnanna sem þú skrifaðir
niður virðist vera sérlega skemmtilegt, þá
skaltu samt velja eitt þeirra og byrja að vinna með
það. Það gæti reynst betra en þú
hugðir í fyrstu.
Áður en þú ferð að skrifa skaltu
athuga efnið sem þú valdir einu sinni enn. Veltu
fyrir þér hvers konar ritgerð þú
átt að skrifa. Á þetta að vera almennt
yfirlit eða sértæk greining efnisins?
Ef ritgerðin á að fjalla almennt
um efnið, þá ertu líklega tilbúin(n)
fyrir næsta þrep. Ef um er að ræða ítarlega
greiningu, þá skaltu athuga að efnið sé
mjög afmarkað. Ef það er of vítt eða
altækt, þá verður þú að
reyna að þrengja efnistökin.
Til dæmis, er efnið „FÆREYJAR“
mjög vítt og almennt. Ef þú átt
að skrifa almennt um efnið, þá er þetta
næg greining á því. Ef þú
átt að skrifa sértæka greiningu, þá
er þetta efni of víðtækt. Þú
verður að þrengja það í undirefni
eins og „Stjórnmál í Færeyjum“ eða
„Færeysk menning“.
Þegar þú hefur fundið
að efnið er rétt og hæfilegt, þá
getur þú farið á næsta þrep.
|