|
Notaðu þetta sem dæmi um hvernig á að skrifa ritgerðRitgerðin fyrir neðan sýnir grunn uppbyggingu ritgerðar. Búið er að merkja helstu hluta ritgerðarinnar. Yrðingin er feitletruð, meginhugmyndir eru skáletraðar og hver stuðningssetning er undirstrikuð. Þegar þú skrifar þína eigin ritgerð þá þarftu auðvitað ekki að merkja hana svona nema kennarinn biðji sérstaklega um það. Þessar merkingar eru settar hér til að auðvelda þér að sjá það sem um er talað á þessum síðum. „Hundurinn er besti vinur mannsins.“ Það er nokkur sannleikur fólginn í þessu orðatiltæki, en hundurinn er ekki eina dýrið sem maðurinn nýtur samvista við. Besti vinur margra er kötturinn. Þvert á það sem hundavinir telja, þá eru kettir frábær gæludýr. Í fyrsta lagi, þá nýtur fólk þess að hafa ketti sem félaga. Margir kettir eru sérlega vinalegir. Þeir nudda sér upp við mann og biðja um að vera strokið eða klórað undir hökuna. Hver getur staðist malandi kött? Þó þeir séu ekki í gæluskapi, þá eru kettir oftast tilbúnir að leika sér. Þeim finnst gaman að elta bolta og fjaðrir, eða bara hvað sem er, sem bundið er í endann á bandi. Þeim finnst sérstaklega gaman að leika sér ef eigendur þeirra taka þátt í leiknum. Þvert á almenna trú, þá er vel hægt að þjálfa ketti. Með samblandi af verðlaunum og refsingum, á sama hátt og með hunda, er hægt að fá ketti til að hætta því sem er óæskilegt eða læra skemmtileg brögð. Kettir sækja jafnvel spýtur! Í öðru lagi eru kettir siðprúðir meðlimir fjölskyldunnar. Öfugt við hunda, þá gelta kettir ekki eða framkalla önnur há hljóð. Fæstir kettir mjálma mikið svo heitið geti. Venjulega eru þeir ró og spekt uppmáluð. Kettir valda líka sjaldan „slysum“. Læður kenna kettlingum sínum hvernig nota á sandkassa og flestir kettir nota hann undantekningalaust frá fyrsta degi. Jafnvel villikettir skilja tilgang kassans, þegar þeim er sýnt hvernig hann virkar, og nota hann reglulega. Kettir hafa að vísu klær og eigendur þeirra verða að taka tillit til þess. Há klórustaur í uppáhalds horni kattarins kemur til móts við brýniþörf hans og þá lætur hann húsgögni í friði. Ef allt fer á versta veg, þá má klódraga köttinn. Að síðustu, þá er það mjög þægilegt hve lítið þarf að hafa fyrir köttum. Það þarf ekki að fara með ketti út að labba. Þeir fá næga hreyfingu innanhúss þegar þeir leika sér og þeir ganga örna sinna í sandkassann. Þrif á sandkassa eru fljótleg og einföld. Kettir sjá líka sjálfir um að snyrta sig. Það er nánast aldrei þörf á að baða kött, því þeir þvo sér sjálfir undir venjulegum kringumstæðum. Köttum er meira annt um að vera hreinir en flestu fólki. Að auki má skilja ketti eftir eina heima í nokkra klukkutíma án þess að hafa áhyggjur af þeim. Ólíkt öðrum gæludýrum, þá skemma kettir ekki húsgögn ef þeir eru skildir eftir einir. Þeir una sér við sína daglegu iðju þar til eigandinn kemur heim. Kettir eru siðfágaðir félagar sem ekki þarf að hafa mikið fyrir. Fólk með litlar íbúðir eða lítinn tíma til að sinna gæludýri ætti að hafa þessa eiginleika katta í huga. Aftur á móti er algengt að fólk með mikinn tíma aflögu og nóg pláss velji að fá sér kött, því þeim líkar vel við persónuleika katta. Að mörgu leiti eru kettir tilvalin gæludýr.
|
|||