Hvernig á að skrifa góða ritgerð

Heim
Efni
Útlínur
Yrðing
Meginmál
Inngangur
Lokaorð
Frágangur
Dæmi
Stiklur

Hvernig á að skrifa góða ritgerð

Lokafrágangur á ritgerðinni


Nú ertu búin(n) að skrifa allar efnisgreinar ritgerðarinnar. Áður en þú getur litið á þetta sem fullbúið verk, aftur á móti, þá verður þú að huga dálítið að uppsetningu hennar á pappír.

Athugaðu röð efnisgreinanna.

Skoðaðu efnisgreinarnar þínar. Hver þeirra er sterkust? Þú vilt hugsanlega byrja á sterkustu efnisgreininni, enda á þeirri sem er næst sterkust og hafa þá veikustu í miðjunni. Hvað sem þú velur, þá skaltu vera viss um að röðin sé rökræn. Ef ritgerðin þín lýsir ferli, þá verður þú líkast til að halda þeirri röð sem lýsir ferlinu rétt.

Athugaðu aftur fyrirmælin frá kennaranum.

Þegar þú setur ritgerðina upp í síðasta sinn, þá skaltu athuga að þú hafir framkvæmt allt sem kennarinn bað um.

  • Eru spássíur rétta?
  • Er titill á ritgerðinni eins og beðið var um?
  • Hvaða aðrar upplýsingar (nafn, dagsetningu, os.s.frv) þarf að hafa með?
  • Eru rétt línubil í ritgerðinni?

Lestu ritgerðina yfir.

Það er ekkert sem getur komið í staðinn fyrir yfirlestur á ritgerð. Með því að lesa yfir það sem þú hefur skrifað, þá getur þú bætt veik atriði sem þú hefðir annar misst af. Lestu yfir ritgerðina – og gerðu það síðan aftur.

  • Er rökrænn ferill í ritgerðinni?
    Leggðu hana frá þér í nokkra klukkutíma og lestu hana síðan aftur. Er ennþá rökrænn ferill í henni?
  • Flæða málsgreinarnar mjúklega hver eftir aðra?
    Ef ekki, þá skaltu reyna að bæta inn orðum og setningum til að bæta þær. Samtengingar eins og „aftur á móti“ eða „þar af leiðir“ hjálpa stundum til. Þú gætir líka vísað í einni málsgrein í hugmynd úr fyrri málsgrein. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar skipt er úr einni efnisgrein í aðra.
  • Ertu búin(n) að athuga stafsetninguna? Til eru forrit sem skoða bæði stafsetningu og málfræði, sérstaklega á ensku. Þess konar hjálpartæki finna ef til vill ekki allar villur, en þau gætu fundið einstaka villur sem hafa farið framhjá þér.

Þegar þú ert búin(n) að lesa yfir ritgerðina og laga uppsetninguna, þá er ritgerðin fullgerð.

Til hamingju!

Proceed Fara til baka á síðustu síðu. Links View links to additional essay resource sites. Home Fara á heimasíðu vefsins.