Hvernig á að skrifa góða ritgerð

Heim
Efni
Útlínur
Yrðing
Meginmál
Inngangur
Lokaorð
Að lokum
Dæmi
Stiklur

Hvernig á að skrifa góða ritgerð

Skrifaðu efnisgreinar meginmálsins


Allur undirbúningurinn fram að þessu kemur til góða núna þegar þú skrifar meginmál ritgerðarinnar. Nú þarftu að útskýra, lýsa eða færa rök fyrir því efni sem þú valdir.

Hver meginhugmynd sem þú skrifaðir niður í útlínunni þinni eða skissunni verður nú ein efnisgrein í meginmálinu. Ef þú settir niður þrjár eða fjórar meginhugmyndir, þá verður þú með þrjár eða fjórar efnigreinar.

Hver efnisgrein í meginmáli hefur sömu grunnuppbygginguna.

  1. Byrjaðu á því að skrifa niður eina af grunnhugmyndum þínum í málsgrein.
    Ef grunn hugmyndin þín er t.d. „draga úr umferðarþunga á þjóðvegum“, þá gæti málsgreinin þín verið :
    Almmenningssamgöngur draga úr umferðarþunga á þjóðvegum.
  2. Næst skrifar þú niður hverja af stuðningshugmyndunum fyrir þessa grunnhugmynd, en skilur eftir fjórar til fimm línur á milli þeirra.
  3. Í bilin á milli stuðningshugmyndanna skrifar þú nánari útfærslu fyrir hana.
    Útfærslan getur verið frekari lýsing, útskýring eða umræða.
    Stuðningshugmynd
    Vegfarendum líkar vel sá sparnaður sem felst í notkun almenningssamgangna.
    Útfærsla
    Minni akstur einkabifreiða þýðir lækkun kostnaðar vegna viðhalds, eins og t.d. olískipta.
    Minni akstur einkabifreiða verður auðvitað til þess að bensín sparast líka.
    Í mörgum tilfellum er þessi sparnaður meiri en kostnaðurinn við almenningssamgöngur.
  4. Ef þú vilt, þá getur þú haft eina máslgrein sem samatekt á efni málsgreinarinnar.
    Þetta þarf í flestu tiilvikum ekki og slíkar málsgreinar eiga það til að hljóma stirðlega, svo þú skalt vara þig á notkun þeirra.

Þegar þú hefur þannig sett kjöt á beinin í meginmálinu, eina efnisgrein fyrir hverja grunn hugmynd, þá getur þú haldið áfram á næsta þrep.


Proceed Fara á næstu síðu. Return

Fara til baka á síðustu síðu.

Home Fara á heimasíðu vefsins.