|
Komdu skipulagi á hugmyndir þínar
Tilgangurinn með útlínu eða skissu er að setja
hugmyndir þínar um efnið niður á blað
í einhvers konar skipulag. Það skipulag sem þú
býrð til nú breytist líkast til áður
en ritgerðinni er lokið, svo þú skalt ekki hafa miklar
áhyggjur af þessu.
Veltu fyrir þér hvort þú vilt frekar stíft
form útlínunnar eða hvort þú vilt nota
sveigjanlegra form. Ef þú byrjar á öðru en
uppgötvar að það hentar þér ekki, þá
getur þú alltaf skipt yfir í hitt.
Skissa
- Byrjaðu skissuna (oft kallað „heilakort“) með því
að draga hring eða beint strik, eða eitthvert annað
form á miðja blaðsíðuna.
- Skrifaðu efnið þitt í hringinn eða á
línuna.
- Frá miðjuhringnum eða línunni dregur þú
þrjú eða fjögur strik út á síðuna.
Athugaðu að hafa gott bil á milli þeirra.
- Við endann á hverri línu teiknar þú
nýjan hring eða dregur nýja línu, eins og þú
gerðir í miðjunni.
- Í hvern hring eða á hverja línu skrifar þú
meginhugmyndirnar sem þú hefur um efnið, eða aðalatriðin
sem þú vilt setja fram.
- Ef þú ert að reyna að sannfæra, þá
viltu skrifa hér sterkustu rökin þín.
- Ef þú ert að reyna að útskýra
ferli, þá setur þú hér fyrstu skrefin
sem þarf að taka. Þú þarft hugsanlega
að setja þau í flokka. Ef þú getur
ekki hugsað upp flokka, þá getur þú
byrjað með „Upphaf“, „Miðju“ og „Endi“.
- Ef þú ert að reyna að fræða, þá
skrifar þú helstu flokka sem hægt er að skipta
upplýsingunum í.
- Frá hverri meginhugmynd dregur þú þrjár
eða fjórar línur út á síðuna.
- Við enda hverrar línu teiknar þú annan hring
eða lárétt strik, eða hvað sem þú
teiknaðir í miðjuna.
- Í hvern hring eða á hverja línu skrifar þú
staðreyndir eða upplýsingar sem styðja meginhugmyndirnar.
Þegar þú ert búin(n), þá ertu með
fyrir framan þig grunn uppbyggingu ritgerðarinnar og ert tilbúin(n)
að halda áfram.
|
Fara á næstu síðu. |
|
Fara til baka á síðustu síðu. |
|
Fara á heimasíðu vefsins. |
Útlína
- Byrjaðu útlínuna með því að
rita efnið efst á blaðið.
- Næst skrifar þú rómversku tölurnar
I, II, og III, með góðu bili á milli niður
eftir vinstri spássíu blaðsins.
- Við hliðina á hverri rómverskri tölu skrifar
þú meginhugmyndinar sem þú hefur um efnið
eða aðalatriðin sem þú vilt að komi fram.
- Ef þú ert að reyna að sannfæra,
þá viltu skrifa hér sterkustu rökin þín.
- Ef þú ert að reyna að útskýra
ferli, þá setur þú hér fyrstu skrefin
sem þarf að taka. Þú þarft hugsanlega
að setja þau í flokka. Ef þú getur
ekki hugsað upp flokka, þá getur þú
byrjað með „Upphaf“, „Miðju“ og „Endi“.
- Ef þú ert að reyna að fræða,
þá skrifar þú helstu flokka sem hægt
er að skipta upplýsingunum í.
- Undir hverjn rómverskan tölustaf ritar þú
A, B, og C niður vinstri spássíuna.
- Hjá hverjum staf ritar þú staðreyndir eða
upplýsingar sem styðja meginhugmyndirnar.
Þegar þú ert búin(n), þá
ertu með fyrir framan þig grunn uppbyggingu ritgerðarinnar
og ert tilbúin(n) að halda áfram.
|
Fara á næstu síðu. |
|
Fara til baka á síðustu síðu. |
|
Fara á heimasíðu vefsins. |
|