|
Skrifaðu Inngang og Lokaorð
Nú vantar bara tvær efnisgreinar í ritgerðina
þína: innganginn og lokaorðin. Þessar efnisgreinar
gefa lesandanum stað til að komast inn í ritgerðina
og annan til að komast út úr henni aftur.
Inngangurinn ætti að vera skrifaður þannig að
hann dragi athygli lesandans að ritgerðinni og gefi honum hugmynd
um, um hvað hún er.
- Byrjaðu á því að grípa athyglina.
Það er undir þér komið að velja hvernig
þú grípur athygli lesandans, en hér eru
nokkrar hugmyndir:
- Uppsláttur
Upplýsingar af þessu tagi verða að vera réttar
og sannreynanlegar, en þær þurfa samt ekkert endilega
að vera algerlega nýjar fyrir lesandann. Þetta
gæti einfaldlega verið staðreynd sem á við
efnið sem þú vilt fjalla um.
Ef þú notar uppslátt, þá skaltu
útfæra hann með
einni eða tveim málsgreinum.
- Atvikssaga
Atvikssaga er sönn saga sem
útskýrir efnistökin.
Athugaðu að hafa atvikssöguna stutta og hnitmiðaða
og að hún sé málefnaleg. Svona byrjun á
ritgerð getur verið mjög áhrifarík, en
farðu samt varlega í notkun hennar.
- Samtal
Viðeigandi samtal þarf ekki endilega að gefa upp hverjir
eru að tala, en lesandinn verður að geta skilið
hvað þú ert að fara með notkun þess.
Notaðu bara tvær til þrjár setnigar frá
hverjum viðmælanda til að koma merkingunni á
framfæri.
Notaðu útfærslu
á eftir samtali til utskýringa.
- Útdráttur
Nokkrar málsgreinar sem útskýra efnistökin
á almennan hátt laða lesandann mjúklega
inn í ritgerðina. Hver málsgrein ætti að
verða sértækari en sú fyrri, þar til
þú kemur að yrðingunni.
- Ef það sem átti að fanga athyglina er stutt,
bættu við einni eða tveim málsgreinum í
viðbót sem leiða lesandann frá byrjuninni að
yrðingunni.
- Endaðu efnisgreinina með því að setja fram
yrðinguna þína.
Lokaorðin binda endahnút á ritgerðina fyrir lesandann,
draga saman niðurstöður úr henni og gefa lokasýn
á efnið.
Það eina sem þarf í góð lokaorð
eru þrjár til fjórar málsgreinar sem þurf
ekki endilega að fylgja einhverri fyrirfram ákveðinni formúlu.
Farðu bara yfir aðalatriðin (en passaðu þig á
að orða þau ekki alveg nákvæmlega á
sama hátt aftur) eða lýstu tilfinningum þínum
til efnisins í stuttu máli. Atvikssaga
getur jafnvel endað ritgerðina á áhrifaríkan
hátt.
Með inngangi og lokaorðum hefur þú skrifað
allar efnisgreinar sem þarf í ritgerðina.
Ekki hætta samt alveg strax! Eitt þrep vantar enn
til að ritgerðin þín verði alveg fullgerð.
|
|
Fara á næstu síðu. |
|
Fara til baka á síðustu síðu. |
|
Fara á heimasíðu vefsins. |
|