|
Lokafrágangur á ritgerðinni
Nú ertu búin(n) að skrifa allar efnisgreinar ritgerðarinnar.
Áður en þú getur litið á þetta
sem fullbúið verk, aftur á móti, þá
verður þú að huga dálítið að
uppsetningu hennar á pappír.
Athugaðu röð efnisgreinanna.
Skoðaðu efnisgreinarnar þínar. Hver þeirra
er sterkust? Þú vilt hugsanlega byrja á sterkustu
efnisgreininni, enda á þeirri sem er næst sterkust
og hafa þá veikustu í miðjunni. Hvað sem þú
velur, þá skaltu vera viss um að röðin sé
rökræn. Ef ritgerðin þín lýsir ferli,
þá verður þú líkast til að halda
þeirri röð sem lýsir ferlinu rétt.
Athugaðu aftur fyrirmælin frá kennaranum.
Þegar þú setur ritgerðina upp í síðasta
sinn, þá skaltu athuga að þú hafir framkvæmt
allt sem kennarinn bað um.
- Eru spássíur rétta?
- Er titill á ritgerðinni eins og beðið var um?
- Hvaða aðrar upplýsingar (nafn, dagsetningu, os.s.frv)
þarf að hafa með?
- Eru rétt línubil í ritgerðinni?
Lestu ritgerðina yfir.
Það er ekkert sem getur komið í staðinn fyrir
yfirlestur á ritgerð. Með því að lesa
yfir það sem þú hefur skrifað, þá
getur þú bætt veik atriði sem þú hefðir
annar misst af. Lestu yfir ritgerðina – og gerðu það
síðan aftur.
- Er rökrænn ferill í ritgerðinni?
Leggðu hana frá þér í nokkra klukkutíma
og lestu hana síðan aftur. Er ennþá rökrænn
ferill í henni?
- Flæða málsgreinarnar mjúklega hver eftir aðra?
Ef ekki, þá skaltu reyna að bæta inn orðum
og setningum til að bæta þær. Samtengingar eins
og „aftur á móti“ eða „þar af leiðir“ hjálpa
stundum til. Þú gætir líka vísað
í einni málsgrein í hugmynd úr fyrri málsgrein.
Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar skipt
er úr einni efnisgrein í aðra.
- Ertu búin(n) að athuga stafsetninguna? Til eru forrit sem
skoða bæði stafsetningu og málfræði,
sérstaklega á ensku. Þess konar hjálpartæki
finna ef til vill ekki allar villur, en þau gætu fundið
einstaka villur sem hafa farið framhjá þér.
|
Þegar þú ert búin(n) að lesa yfir
ritgerðina og laga uppsetninguna, þá er ritgerðin
fullgerð.
Til hamingju!
|
|
Fara til baka á síðustu síðu. |
|
View links to additional essay resource sites. |
|
Fara á heimasíðu vefsins. |
|