Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjarkennsla VMA
Áfangalýsing

ÍSL 252

Nafn áfanga: Íslenska
Stutt áfangalýsing: Farið verður yfir helstu atriði sem varða munnlega tjáningu. Allt frá öndun og hljóðmótun til skipulegs ræðuflutnings. Fjallað um hljóðfræði, framsögn, talað mál, upplestur og ræðumennsku. Nemendur vinna munnleg verkefni til hljóðupptöku og á myndband sem eru metin til lokaeinkunnar.
Undanfari: Æskilegt að nemendur hafi a.m.k. lokið ÍSl 102 og ÍSl 202 en ekki skilyrði.
Kennsluform: Námsbókin: Opinber tjáskipti (fæst í Bókabúð Jónasar Akureyri), kennslubréf, vefsíða og spjallrás.
Námsmat: Byggist eingöngu á verkefnavinnu nemenda. Matið er fyrst og fremst byggt á munnlegum hljóðupptökum nemenda 85% en auk þess á minni verkefnum sem nemendur skila langflestum á sérstaka spjallrás áfangans 15%.
Heimasíða: http://thor.vma.is/kennsla/tja102/index.htm
Annað: Nemendur í áfanganum þurfa að búa að, eða hafa aðgang að, eftirfarandi tæknibúnaði: Netvafra, einhverju hljóðupptökutæki og myndbandsupptökutæki.
ATHUGIÐ: Áfanginn er samkenndur með TJÁ 102
Bókalisti