Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjarkennsla VMA
Áfangalýsing

HSP 103

Nafn áfanga: Heimspeki 103 - Inngangur að heimspeki
Stutt áfangalýsing: Helstu markmið áfangans eru að nemendur kynnist heimspekilegum vandamálum og kenningum sem hafa mótað hugsunarhátt Vesturlandabúa gegnum aldirnar og öðlist skilning á nokkrum frumhugtökum á borð við rök, sannindi, ályktun og þekking. Að nemendur öðlist færni í að hugsa sjálfstætt um þessi vandamál og gera með skipulegum og gagnrýnum hætti grein fyrir sínum eigin skoðunum og viðhorfum.
Undanfari: Enginn
Kennsluform: Í hverri viku fá nemendur sent nýtt verkefni í tölvupósti. Alls eru verkefnin tólf talsins og þar af skal hver nemandi leysa a.m.k. tíu. Nemendur hafa 10 daga til að leysa hvert verkefni. Þeir geta spurt kennara ráða eða beðið um skýringar á verkefnum í tölvupósti.
Námsmat: Auk þess sem hver nemandi þarf að skila lausn á 10 stuttum verkefnum þarf hann að taka heimapróf um miðja önn og lokapróf. Verkefnin 10 gilda 50% - skili nemandi fleiri verkefnum en 10 gilda 10 hæstu einkunnirnar sem hann fær fyrir verkefni. Heimaprófið gildir 10% og lokapróf vegur 40%. Til að nemandi fái próftökurétt þarf hann að skila öllum 10 verkefnunum.
Heimasíða: http://this.is/atli/
Annað:
Bókalisti