Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjarkennsla VMA
Áfangalýsing

FÉL 303

Nafn áfanga: Stjórnmálafræði
Stutt áfangalýsing: Í áfanganum er stjórnmálafræðin kynnt sem fræðigrein. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum sem notuð eru í fræðigreininni. Nemendur læra að greina helstu hugmyndafræðistrauma stjórnmálanna. Þeir læra um einkenni og forsendur lýðræðis og hvað greini lýðræði frá einræðis- og alræðisstjórnarfari. Rakin er þróun íslenskra stjórnmála frá sjálfstæðisstjórnmálum til stéttastjórnmála og til þeirrar margbreytni sem nú einkennir íslensk stjórnmál. Nemendur meta þróun íslenskra stjórnmála út frá þeim hugtökum sem þeir læra og tengja sögu íslenskra stjórnmálaflokka við helstu hugmyndakerfin. Nemendur læra um þróun og hlutverk Alþingis, sögu og fylgisþróun stjórnmálaflokkanna og áhrif ólíkra hagsmunasamtaka í íslenskum stjórnmálum. Nemendur læra hvernig túlka má íslenska stjórnmálakerfið og stjórnmálaþátttöku út frá ólíkum kenningum. Nemendur skoða hlutverk fjölmiðla varðandi lýðræðisþróun og hvernig áhrifavaldar í stjórnmálum nota fjölmiðla, þar á meðal heimasíður á Netinu. Meginmarkmið áfangans er að gera nemendur hæfari til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi. Stefnt er að því að nemendur geti lagt gagnrýnið mat á átakaefni í íslenskum stjórnmálum og að þeir geti rökstutt slíkt mat með fræðilegum vinnubrögðum.
Undanfari: FÉL 203
Kennsluform: Rafræna kennsluumhverfið Blackboard
Námsmat: Áfanginn er próflaus.
Nemendur verða að skila inn 80% af verkefnum annarinnar til að standast áfangann .
Heimasíða: http://Blackboard.hi.is
Annað: Lokaprófið er gagnvirkt og tekið á Netinu
Bókalisti