Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjarkennsla VMA
Áfangalýsing

FÉL 203

Nafn áfanga: Kenningar og samfélag
Stutt áfangalýsing: Í þessum áfanga er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar og kynntar helstu kenningar greinarinnar. Samfélagið er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og nokkrar þekktar rannsóknir innan félagsvísinda skoðaðar. Farið er yfir vítt svið félagsfræðinnar og nemendur þjálfaðir í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslegum málefnum. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist dýpri skilning á hugtökum sem kynnt eru í FÉL 103 og setji þau í fræðilegra samhengi.

Fjallað er um frumkvöðla félagsfræðinnar, Comte, Durkheim, Marx og Weber, og framlag þeirra til greinarinnar. Farið er í helstu kenningar, svo sem samvirkni-, samskipta- og átakakenningar. Fjallað um sjálfsmyndina og táknræn samskipti, m.a. út frá kenningum Goffmans. Nemendur læra um félagslega lagskiptingu, frávik, fjölmiðla og áhrif þeirra (þar á meðal Netsins), enn fremur kynhlutverk, og skoða þessi viðfangsefni í ljósi ólíkra félagsfræðikenninga.

Meginmarkmið áfangans er að nemandinn öðlist dýpri skilning á félagsfræðilegum hugtökum og kenningum og geti beitt þeim við túlkun og greiningu á samfélaginu, bæði almennt og á tiltekin viðfangsefni.
Undanfari: FÉL 103
Kennsluform: Blackboard og heimasíða kennara: www.gardargislason.net
Námsmat: Skriflegt próf í lok annar 60%
Vinnueinkunn fyrir verkefni sem send eru til kennara 40%
Heimasíða: http://Blackboard.hi.is
Annað: Lokaprófið er gagnvirkt og tekið á Netinu
Bókalisti