Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjarkennsla VMA
Áfangalýsing

FÉL 103

Nafn áfanga: Almenn félagsfræði
Stutt áfangalýsing: Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsvísinda. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á umhverfi sínu nær og fjær svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegum umræðum og mynda sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem stýra hegðun og athöfnum einstaklingsins og keppt er að því að nemendur öðlist skilning á uppbyggingu og skipulagi eigin samfélags og annarra. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu á grunnþáttum íslenska samfélagsins og geti borið það saman við nokkur önnur samfélög nær og fjær. Sömuleiðis að nemandinn átti sig á því hvernig samfélagið hefur áhrif á hann og hvernig hann getur haft áhrif á samfélagið.
Undanfari: Enginn
Kennsluform: Blackboard og heimasíða kennara:
Námsmat: Skriflegt próf í lok annar 60%
Vinnueinkunn fyrir verkefni sem send eru til kennara 40%
Heimasíða: http://Blackboard.hi.is, www.gardargislason.net
Annað: Lokaprófið er gagnvirkt og tekið á Netinu
Bókalisti