Verkmenntaskólinn á Akureyri

Fjarkennsla VMA
Áfangalýsing

ENS 212

Nafn áfanga: Enska
Stutt áfangalýsing: Lestur almennra og sérhæfðra texta. Rifjuð eru upp málfræðiatriði úr yfirferð ENS 102 og ENS 202 og bætt við eftir því, sem tilefni er til. Unnið með orðabók þar sem það á við. Aukin áhersla á að nemendur tjái sig frjálst og óbundið. Í skriflega þættinum er gerð krafa um flóknari setningaskipan, nákvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áföngum.
Undanfari: ENS 202
Kennsluform: Kennslan fer öll fram í gegnum tölvu. Allir lestextar, æfingar og annað sem nemendur þurfa að skoða verður sett á Blackboard vefumhverfi. Nemendur þurfa að hafa vefskoðara, t.d. Internet Explorer 3.0, Netscape 3.0 eða nýrri gerð, í tölvum sínum.
Námsmat: Annarprófið: 50%
Smásagnaverkefni: 15%
Skáldsöguritgerð: 15%
Aðrar æfingar og verkefni: 20%
Heimasíða: http://www.Blackboard.is:8900/public/vmaens212f/index.html
Annað:
Bókalisti